Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fimmtudaginn 19. mars kl. 10:30 byrjar nýtt 8 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki. Reiðnámskeið hafa verið í boði frá ársbyrjun 2014 og þátttakendur eru mjög ánægðir. Námskeiðið styrkir bæði líkama og sál því fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur.
Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.
Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 19. mars fram til 7. maí. Á þessu tímabili eru tveir „rauðir dagar", þ.e. á skírdag 2. apríl og sumardaginn fyrsta 23. apríl, og verður námskeiðið á þriðjudegi þá vikuna, þ.e. 31. mars og 21. apríl.
Þátttakendum verður skipt í 2 eða 3 „holl“ þar sem hvert holl er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20-25 mínútur á baki. Um 5-10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem ekki er síður skemmtilegt.
8 vikna námskeið kostar 24.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.000 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og frábær aðstaða en nú er komin sérstök lyfta (gjöf frá MS-manni á sínum tíma) sem gerir það auðvelt að komast á bak. Ósjaldan er boðið upp á kaffi fyrir þá sem bíða.
Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslum á tvo til þrjá mánuði, þ.e. 12.000 kr. eða 8.000 kr. á mánuði.
Myndin hér að ofan er tekin 12. febrúar sl. en myndin hér að neðan er tekin af sömu konu 3. apríl 2014. Mikill munur á öryggi, ásetu og jafnvægi á 10 mánuðum :-)
Sjá má fyrri umfjallanir um reiðnámskeiðin hér, hér og hér.
Sjá myndir sem teknar voru á fyrri reiðnámskeiðum hér.
Skráning og upplýsingar í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is fyrir mánudaginn 16. mars n.k.
Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.
BB