MS-félagið, í samstarfi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ, býður nú upp á reiðnámskeið eða þjálfun á hestbaki. Um er að ræða 10 vikna námskeið, einu sinni í viku. Ekki þarf annað en góðan hlýjan fatnað þar sem innifalið í námskeiðsgjaldinu er allur nauðsynlegur útbúnaður, svo sem hjálmur, reiðtygi og hnakkur.

Fræðslunefnd fatlaðra hefur um þó nokkurt skeið boðið upp á reiðnámskeið fyrir fatlaða, aðallega börn en þó einnig fyrir eldri. Góð aðstaða er því fyrir fatlaða, bæði hvað varðar aðkomu að Reiðhöllinni í Mosfellsbæ, þar sem námskeiðin eru haldin, sem og að komast á bak hestunum. Um er að ræða tilraunaverkefni sem MS-félagið vonar að verði vel tekið. Þjálfun fatlaðra á hestbaki þykir gefast mjög vel; bætir jafnvægi og styrkir líkama og sál.

Námskeiðið verður á fimmtudögum kl. 14:45-15:45. Hámarksþátttökufjöldi er 8 og er gert ráð fyrir að 4 verði á hestbaki í einu, aðrir horfi á á meðan en góðir bekkir eru til að sitja á.  Námskeiðið hefst 30. janúar og stendur til 3. apríl. Námskeiðið kostar 30.000 kr. fyrir félagsmenn og 35.000 kr. fyrir utanfélagsmenn.

Eingöngu eru notaðir rólegir og gæfir hestar og er teymt undir hverjum og einum. Þátttakendur eru með hjálm og öryggisbelti. Einn til þrír leiðbeinendur eða sjálfboðaliðar ganga með hverjum hesti, allt eftir getu og þörfum þátttakanda. Að öllu jöfnu fer þjálfunin fram inni í Reiðhöllinni en ef aðstæður eru góðar og þátttakandi treystir sér til er farið út. Það er þó kalt í Reiðhöllinni og því nauðsynlegt að mæta í hlýjum fatnaði.

Um námskeiðið sjá Berglind Inga Árnadóttir, reiðkennari og eigandi hestanna, Fríða Halldórsdóttir sem þekkir vel til MS-sjúkdómsins og Hildur Þöll, sjúkraliði. Til aðstoðar eru félagsmenn Hestamannafélagsins Harðar og sjálfboðaliðar.

Sjá umfjöllun um reiðnámskeiðin fyrir fatlaða í umfjöllun mbl.is hér og fésbókarsíðu Fræðslunefndarinnar hér (Fræðslunefnd fatlaðra hjá Herði). Sjá má staðsetningu Reiðhallarinnar hér.

 

Áhugasamir skrái sig á skrifstofu MS-félagsins í síma 568 8620 á milli kl. 10 og 15 eða með því að senda tölvupóst á msfelag@msfelag.is í seinasta lagi mánudaginn 27. janúar.

 

BB