MS-félaginu hefur borist eftirfarandi fundarboð um opinn fund Sérstakrar stjórnar Ferðaþjónustu fatlaðra með notendum þjónustunnar:

 

Kæru notendur Ferðaþjónustu fatlaðra


Að frumkvæði Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra hefur verið ákveðið að Hin sérstaka stjórn sem sett var yfir Ferðaþjónustu fatlaðra þann 5. febrúar sl. gefi notendum og/eða aðstandendum þeirra kost á að koma til fundar við stjórnina nk. miðvikudag.

 

Fundardagur:           18. febrúar 2015
Fundartími:               kl. 16:00 -18:00
Fundarstaður:          félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12, gengið inn að sunnanverðu í austurálmu Sjálfsbjargarhússins.



Mikilvægt er fyrir stjórnina að heyra í notendum og taka mið af þeirra skoðunum í vinnu stjórnarinnar sem framundan er.

Sjálfsbjörg hvetur alla notendur ferðaþjónustunnar og/eða aðstandendur þeirra til að sækja fundinn og greina frá reynslu sinni af ferðaþjónustunni. Á fundinum gefst einnig gullið tækifæri til að koma með tillögur til úrbóta á þjónustunni.


Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra

 

BB