Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Í apríl-hefti læknatímaritsins Lancet voru birtar niðurstöður fasa-II rannsóknar á lyfinu Ozanimod og lofa niðurstöður góðu fyrir þá sem eru með MS í köstum. Samkvæmt þeim dró Ozanimod verulega úr sjúkdómsvirkni þátttakenda yfir 24 vikna tímabil auk þess sem aukaverkanir þykja óverulegar. Lyfið er nú prófað í stærri 2ja ára fasa-III rannsókn til að staðfesta niðurstöðurnar. Ef allt gengur vel má vænta þess að lyfið komi á markað innan fárra ára.
Í rannsókninni, sem ber heitið RADIANCE, tóku þátt 258 einstaklingar með sjúkdómsgerðina MS í köstum og komu þeir frá 55 MS-sjúkrastofnunum í Bandaríkjunum og 12 Evrópulöndum. Þátttakendur voru á aldrinum 18-55 ára, allir með virkan sjúkdóm og með fötlun mælda á EDSS-fötlunarmælikvarðanum á bilinu 0 til 5.
Valkostur með Gilenya
Verkun Ozanimod er svipuð og Gilenya sem hefur verið í notkun á Íslandi frá árinu 2013 og reynst mörgum vel. Gilenya fækkar köstum um 50% og að auki fengu um 70% þátttakenda engin köst á rannsóknartímabilinu sem stóð í tvö ár.
Gilenya geta hins vegar fylgt aukaverkanir eins og slæmar sýkingar og áhrif á hjarta og blóðþrýsting, sjónudepilsbjúg, sem lýsir sér sem versnun á sjón, og breytingar á lifrastarfsemi.
Því gæti Ozanimod mögulega reynst góður valkostur við Gilenya, með svipaða virkni en án hættulegra aukaverkana.
Bergþóra Bergsdóttir