Hið árlega og vinsæla páskabingó MS-félagsins fyrir MS-fólk og fjölskyldur þeirra verður haldið laugardaginn 8. apríl n.k. kl. 13-15 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.

Vinningar eru páskaegg af öllum stærðum og gerðum.

Bingóstjórar verða enn einu sinni þær frábæru og eilíft hressu vinkonur; Ólína, Linda og Vigdís.

 

Húsið opnar kl. 12:30.

 

Veitingar til sölu á vægu verði.

 

 

BB