MS-félagið fagnar 50 ára afmæli 20. september n.k. Af því tilefni býður félagið til ráðstefnu og í afmælisveislu að ráðstefnu lokinni í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5.
Ráðstefnan ber yfirskriftina – MS-sjúkdómurinn – staða og horfur.
Dagskrá:
12:00 Húsið opnar
12:30 Björg Ásta Þórðardóttir, formaður MS-félagsins
12:35 Ávarp; Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
12:50 Haukur Hjaltason, sérfræðingur í taugalækningum á taugalækningadeild LSH
MS í víðu samhengi
Fjallað verður um söguna og stöðuna í dag, þróun þekkingar, greiningar og meðferðar,
og um einkenni sjúkdómsins. Aðeins verður komið inn á tilveruna með MS út frá sjónarmiði
læknis og sjúklings.
13:30 Ólafur Thorarensen, sérfræðingur í taugalækningum barna á Barnaspítala Hringsins
Er MS í börnum sami sjúkdómur og MS í fullorðnum?
Þrátt fyrir að MS í börnum (MSB) og MS í fullorðnum (MSF) séu að mörgu leiti líkir þá er
líka talsvert sem skilur þá að. Ástæður eru að hluta til mismunur í þroska miðtaugakerfis
og ónæmiskerfis í börnum og fullorðnum. Fjallað verður almennt um MSB og reynt að
leita svara við því þeirri spurningu hvort MSB og MSF sé sami sjúkdómurinn.
13:55 Hlé
14:10 Berglind Jóna Jensdóttir, sálfræðingur
Áhrif MS-sjúkdómsins á lífsgæði og andlega líðan
MS-sjúkdómurinn getur haft margvísleg áhrif á lífsgæði og andlega líðan þeirra sem
greinast. Margir MS-sjúklingar glíma við tilfinningavanda og þá aðallega þunglyndi og kvíða.
Að ná sátt við stöðu sína og lifa með óvissu um framvindu sjúkdómsins er mikil áskorun
fyrir MS-fólk. Lítið aðgengi er nú að sálfræðimeðferð og stuðningi og það þarf að bæta.
14:35 Anestis Divanoglou, lektor á heilbrigðisvísindasviði HÍ
Activity courses led by peers with disability
Fyrirlesturinn lýsir hugmyndafræði um virka endurhæfingu (community rehabilitation model
“Active Rehabilitation”), sem upphaflega var þróuð fyrir fólk með mænuskaða í Svíþjóð.
Hugmyndafræðin gengur aðallega út á virka endurhæfingarmeðferð/-námskeið í 7-10 daga
þar sem kennslan/meðferðin fer fram á jafningjagrundvelli með leiðbeinendum sem einnig
eru fatlaðir. Unnið hefur verið eftir hugmyndafræðinni “Active Rehabilitation” í yfir 20
löndum á sl. 40 árum og hún verið aðlöguð að öðrum sjúkdómum eins og MS.
Hægt er að kynna sér módelið með því að horfa á myndband um “Active Rehabilitation”
í Noregi
hér (5 mín – á norsku) og í Grikklandi
hér (35 mín – enskur texti).
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
15:00 Belinda Davíðsdóttir Chenery, sjúkraþjálfari BSC, KCMT
Hámarksárangur af þjálfun
Þetta erindi fjallar um það hvernig hægt er að nota þjálfun til að bæta lífsgæði einstaklinga
með MS. Þjálfun er í dag viðurkennt meðferðarform sem nýtist til að bæta færni, virkni og
þátttöku einstaklinga með MS-sjúkdóminn. Rannsóknir og reynsla hafa leitt í ljós að sumar
aðferðir og áherslur í þjálfun nýtast betur en aðrar til að ná hámarksárangri. Hvernig er
hámarksárangri náð og hvað ber að hafa í huga við þjálfun einstaklinga með MS?
15:30 Afmælisveisla
Fundarstjóri verður Margrét Pála Ólafsdóttir, fræðslustjóri Hjallastefnunar, aðstandandi einstaklings með MS og fyrrum stjórnarmaður í félaginu.
Þar sem húsnæði er takmarkað er nauðsynlegt að skrá þátttöku sem allra fyrst á vefsíðu félagsins hér eða með því að hringja á skrifstofu félagsins í síma 568 8620 mán-fim frá kl. 10-15.
Sjá boðskort hér.
BB