Fimmtudaginn 7. janúar kl. 10:30 byrjar nýtt 10 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki. Reiðnámskeiðin hafa nú verið haldin í tvö ár og eru þátttakendur mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst á líkama og sál. Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur.

Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.

Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 7. janúar fram til 10. mars.

Þátttakendum verður skipt í 2 hópa þar sem hver hópur er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem er ekki síður skemmtilegt J

10 vikna námskeið kostar 30.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.000 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum einstaklingum. Ósjaldan er boðið upp á kaffi fyrir þá sem bíða.

Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslum á þrjá mánuði, þ.e. 10.000 kr. á mánuði.

 

Sjá má fyrri umfjallanir um reiðnámskeiðin hérhér og hér.

Sjá myndir sem teknar voru á fyrri reiðnámskeiðum hér og hér.

 

Skráning og upplýsingar hjá Bergþóru í síma 861 4587 eða með tölvupósti á bergthora@msfelag.is fyrir 4. janúar n.k.

 

Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.

 

Á myndunum sem fylgja fréttinni má sjá Freyju Jóhannesdóttur sem byrjaði á reiðnámskeiði fyrir um ári síðan og hafði þá aldrei haft neitt með hesta að gera. Hún getur nú vart hugsað séð tilveruna án hestanna – og þeir ekki sína tilveru án hennar – því hún kemur með brauð, gulrætur og epli handa þeim í hvert skipti og gefur þeim í lok tímans J