Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fimmtudaginn 31. mars kl. 10:30 byrjar nýtt 7 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki. Reiðnámskeiðin hafa nú verið haldin í rúm tvö ár og eru þátttakendur mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst á líkama og sál. Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur.
Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.
Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 31. mars fram til 26. maí.
Þátttakendum verður skipt í 2 hópa þar sem hver hópur er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem er ekki síður skemmtilegt J
7 vikna námskeið kostar 21.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.000 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum einstaklingum. Ósjaldan er boðið upp á kaffi fyrir þá sem bíða.
Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslum á tvo mánuði, þ.e. 10.500 kr. á mánuði.
Sjá má fyrri umfjallanir um reiðnámskeiðin hér, hér og hér.
Sjá myndir sem teknar voru á fyrri reiðnámskeiðum hér, hér og hér.
Skráning á msfelag@msfelag.is eða á skrifstofunni í síma 568 8620 fyrir 18. mars n.k.
Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.
BB