Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fimmtudaginn 6. október kl. 10:30 byrjar nýtt 10 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki.
Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur.
Þátttakendur sem verið hafa á námskeiðunum hafa verið mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst á líkama og sál.
Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.
Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 6. október fram til 8. desember, klkukkutíma í senn.
Þátttakendum verður skipt í 2 hópa þar sem hver hópur er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem er ekki síður skemmtilegt.
Að öllu jöfnu fer þjálfunin fram inni í Reiðhöllinni en ef aðstæður eru góðar og þátttakandi treystir sér til er farið út. Það er þó kalt í Reiðhöllinni og því nauðsynlegt að mæta í hlýjum fatnaði.
Um námskeiðið sjá Berglind Inga Árnadóttir, reiðkennari og eigandi hestanna og Fríða Halldórsdóttir sem þekkir vel til MS-sjúkdómsins.
10 vikna námskeið kostar 33.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.300 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum sem ófötluðum einstaklingum. Ósjaldan er boðið upp á kaffi fyrir þá sem bíða.
Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslum á þrjá mánuði, þ.e. 11.000 kr. á mánuði.
Skráning á msfelag@msfelag.is eða á skrifstofunni í síma 568 8620 fyrir fimmtudaginn 29. september n.k.
Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.
BB