Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Fimmtudaginn 5. október byrjar nýtt 10 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki.
Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva.
Þátttakendur sem verið hafa á námskeiðunum hafa verið mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst á líkama og sál.
Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.
Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 5. október fram til 7. desember, klukkutíma í senn, frá 10:30-11:30.
Þátttakendum verður skipt í 2 hópa þar sem hver hópur er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem er ekki síður skemmtilegt. Myndast þá þessi líka fína kaffihúsastemming.
Að öllu jöfnu fer þjálfunin fram inni í Reiðhöllinni en ef aðstæður eru góðar og þátttakandi treystir sér til er farið út. Það er þó kalt í Reiðhöllinni og því nauðsynlegt að mæta í hlýjum fatnaði.
Um námskeiðið sjá Berglind Inga Árnadóttir, reiðkennari og eigandi hestanna og Fríða Halldórsdóttir sem þekkir vel til MS-sjúkdómsins.
10 vikna námskeið kostar 36.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.600 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum sem ófötluðum einstaklingum.
Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslu á 3 mánuði.
Skráning á msfelag@msfelag.is eða á skrifstofunni í síma 568 8620 fyrir föstudaginn 29. september n.k.
Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.
BB