Samkvæmt lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk starfa réttindagæslumenn fatlaðs fólks í öllum landshlutum. Verkefni þeirra er að fylgjast með högum fatlaðs fólks og aðstoða það við hvers konar réttindagæslu. Réttindagæslumenn fatlaðs fólks eru átta og starfa um land allt.

Fatlaður einstaklingur getur leitað til réttindagæslumanns með hvaðeina sem varðar réttindi hans, fjármuni og önnur persónuleg mál. Réttindagæslumaður skal veita honum stuðning og aðstoða hann við að leita réttar síns eftir því sem við á. Einnig er gert ráð fyrir að hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs einstaklings geti tilkynnt það réttindagæslumanni auk þess sem réttindagæslumaður getur tekið upp mál að eigin frumkvæði. Réttindagæslumaður skal vera sýnilegur og standa fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.

Réttindagæslumenn fatlaðs fólks eru átta og starfa í landshlutum sem hér segir:

Reykjavík og Seltjarnarnes
Halldór Gunnarsson
s. 858 1550
halldor.gunnarsson@rett.vel.is
Aðsetur: Borgartún 22, 105 Reykjavík

Helga Baldvins- og Bjargardóttir
s. 858 1627
helga@rett.vel.is  
Aðsetur: Borgartún 22, 105 Reykjavík

Kópavogur, Garðabær, Álftanes, Mosfellsbær og Kjós
Ingibjörg Guðrúnardóttir
s. 858 1753
ingibjorg.gyda@rett.vel.is  
Aðsetur: Hlíðasmára 6, 2. hæð, 201 Kópavogi

Hafnarfjörður og Suðurnes
Rósa Hrönn Árnadóttir
s. 858 1798
rosa.hronn@rett.vel.is  
Aðsetur: Hlíðasmára 6, 2. hæð, 201 Kópavogi

Vesturland og Vestfirðir
Jón Þorsteinn Sigurðsson
s. 858 1939
jons@rett.vel.is  
Aðsetur: Rauði kross Íslands, Akranesdeild, Skólabraut 25a, 300 Akranesi

Norðurland
Guðrún Pálmadóttir
s. 858 1959
gudrun.palmadottir@rett.vel.is  
Aðsetur: Vinnueftirlit ríkisins, Skipagötu 14, 600 Akureyri

Austurland
Sigurlaug Gísladóttir
s. 858 1964
sigurlaug.gisladottir@rett.vel.is  
Aðsetur: Tjarnarbraut 39a (Vonarland), 700 Egilsstaðir

Suðurland
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjana.sigmundsdottir@rett.vel.is
s. 858 2142

---

Tekið af vef Velferðarráðuneytisins