Reykjavíkurmaraþonið nálgast nú óðfluga og enn fer þeim fjölgandi sem hlaupa fyrir félagið og safna áheitum.

Í dag hafa 80 manns sýnt stuðning sinn við MS-félagið í verki og hafa safnast 561.500 kr. Það er ótrúlega flott. 

 

 

MS-félagið mun verða með bás í Laugardalshöllinni fyrir hlaupið og hvetjum við hlaupara okkar og stuðningsfólk til að heimsækja okkur í básinn.

 

 

Hægt er að fylgjast með hlaupurum og áheitasöfnun hér (löng skjásíða)

Hægt er að heita á hlaupara hér.

 

Rafræn skráning er opin hér á marathon.is til 20. ágúst nk. kl. 13.

Hreyfihamlaðir geta einnig tekið þátt, sjá hér.

Verðskrá þátttökugjalda má sjá hér.