Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 23. ágúst n.k. er í fullum gangi. Hægt er að fá lægra þátttökugjald með því að skrá sig tímanlega. 

Í dag hafa 37 skráð sig til leiks fyrir MS-félagið og eitt boðhlaupslið og hafa þau nú þegar safnað 131.000 kr. J

Stuðningur sem þessi er MS-félaginu ómetanlegur og kemur að góðum notum við að efla félagsstarfið og þjónustu við félagsmenn.

Rafræn skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014 er opin hér á marathon.is til 21. ágúst nk.

Hreyfihamlaðir geta einnig tekið þátt, sjá hér.

Verðskrá þátttökugjalda má sjá hér.