Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Á aðalfundi MS-félagsins sem haldinn var laugardag 8. 9. 2012 var þess minnst að tíu ár eru síðan Listaverkið Stoð var sett upp á lóð félagsins að Sléttuvegi 5. Nánar tiltekið 12.9.2002
Höfundur verksins Gerður Gunnarsdóttir flutti erindi um sögu verksins. Hún rakti framkvæmdasögu verksins en styttan var steypt í Englandi og sá hönnuður um eftirlit og framkvæmd verksins .
Gerður sagði líka frá sjálfri sér og sinni upplifun á sjúkdómnum á hrífandi hátt.
Styttan , Stoð, þar sem tvær manneskjur styðja hvor aðra, er lýsandi fyrir það sem MS fólk þarf sérstaklega á að halda, stuðningi og samstöðu.
Nokkur stórfyrirtæki styrktu félagið í upphafi til að fjármagna þetta verk sem er orðin nokkurskonar ímynd félagsins í hugum margra. Þau fengu einnig afsteypu í bronz af minni styttu en þær voru steyptar í Kína.
Um leið og við þökkum Gerði fyrir hugljúft erindi og tryggð við félagið í gegnum árin, þökkum við öllum þeim sem sýndu okkur vinarhug og stuðning við gerð verksins á sínum tíma.
Þeir sem styrktu okkur þá voru:
Búnaðarbanki Íslands, Hástígur ehf, Hansa hf, P.Samúelsson hf-Toyota, Íslandsbanki hf, Flugleiðir hf, Grandi hf, Góa-Linda ehf, Sjóvá-Almennar hf, STS- Styrkur og Stoð hf, Hvalur hf, Íslensk erfðagreining ,
Hvíta Örkin sf, Eimskip hf, Steinsmiðja S.Helgason hf, Öflun ehf, Guðrún Þóra Jónsdóttir, Ólafur Egilsson sendiherra, d&e MS ,Hafnarfjarðarbær, Kópavogsbær, Reykjavíkurborg