Viltu hjálpa til við að renna styrkari stoðum undir rekstur MS-félagsins og gerast

 

 

STOÐVINUR

 

 

Félagið býður upp á metnaðarfulla þjónustu fyrir félagsmenn sína, svo sem:

 

Ýmis námskeið, svo sem fyrir nýgreinda, börn, maka og foreldra MS-fólks, jafnvægis- og styrktarnámskeið, yoga, minnisnámskeið, námskeið í virkni og vellíðan, HAM – hugræn atferlismeðferð og kynjabundin kynlífsnámskeið

Lyfjahóp sem leggur sig fram um að viða að sér nýjustu upplýsingum um lyfjamál og vera í forsvari gagnvart heilbrigðisyfirvöldum til að tryggja að MS-fólk njóti bestu mögulegrar meðferðar á hverjum tíma

Fræðslu- og kynningarfundi - upptökur af flestum fundum eru settar á heimasíðuna sem þjónusta við þá sem ekki eiga heimangengt og fyrir landsbyggðarfólk

Landsbyggðarfundi til að færa fólk á landsbyggðinni nær félaginu – kynning á félaginu, lyfjamálum og hjálpartækjum

Íbúð til útleigu til skemmri tíma að Sléttuvegi 9 sem er aðallega nýtt af landsbyggðarfólki og MS-fólki búsettu erlendis

Viðtalstíma við formann félagsins – er sérstaklega vel tekið af nýgreindum og aðstandendum þeirra

MS-Setrið - stendur MS-fólki til boða - rekið skv. þjónustusamningi við Velferðarráðuneytið

Félagsráðgjafa – viðtalstímar á föstudögum frá kl. 10-13

Skrifstofu – opið daglega frá kl. 10-15

Útgáfu tímarits MeginStoð tvisvar á ári

Þátttöku í Alþjóðadegi MS-félaga

Vefsíðu og fésbókarsíðu

Erlent samstarf

Nefndastarf

Ýmislegt annað ótalið

 

MS-félagið nýtur mjög lítilla opinberra styrkja og innheimtir mjög lágt félagsgjald svo velvild einstaklinga, félaga og fyrirtækja stendur undir starfsemi félagsins.

Til að gerast Stoðvinur er hægt að hafa samband við MS-félagið í síma 568 8620 eða með tölvupósti á netfangið ingdis@msfelag.is. Hægt er að gerast Stoðvinur með skuldfærslubeiðni af kreditkorti eða bankareikningi.

Sem þakklæti fyrir stuðninginn fá allir Stoðvinir árlega jólaglaðning frá MS-félaginu.

Sjá hér