Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Bræðurnir Daniel Kjartan og Davíð Fjölnir Ármannsynir gerðu stuttmynd fyrir Alþjóðadag MS í maí 2011 sem ber heitið MS og daglegt líf. Skyggnst er örsnöggt inn í daglegt líf fjögurra einstaklinga með MS og nokkrar staðreyndir um sjúkdóminn settar fram á einfaldan hátt.
Undir myndinni hljómar lagið "Upp og niður stigann" í flutningi hljómsveitarinnar Sálin hans Jóns míns og Stórsveitar Reykjavíkur, sem gáfu góðfúslegt leyfi til notkunar lagsins.
Bræðurnir báru veg og vanda af gerð myndarinnar og gáfu MS-félaginu.
Á myndinni með fréttinni má sjá Daníel með yngri son sinn, Ísak, og Berglind formann á Alþjóðadegi MS í maí 2011.
Hér er hægt að sjá stuttmyndina sem tekur um 1 1/2 mínútu í sýningu.