Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Um er að ræða fyrstu reglugerð þess efnis sem sett verður samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og mun koma í stað reglugerðar nr. 460/2003, um styrki Tryggingastofnunar ríkisins vegna hjálpartækja, og að hluta til reglugerðar nr. 752/2002, um styrki og uppbætur Tryggingastofnunar ríkisins til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.
Fyrir utan hækkun styrkja eru lagðar til nokkrar efnislegar breytingar. Þær eru þessar helstar:
- Að styrkur til brunaumbúða verði 100%. Ekki er um mörg tilvik að ræða á ári en búnaður er dýr og þörf á endurnýjun á meðan sár eru að gróa.
- Að styrkur vegna kviðbelta verði aukinn í samræmi við spelkur almennt, þ.e. áfram 70% ef notkun er styttri en eitt ár, en verði 100% ef um alvarlegt langvarandi ástand er að ræða.
- Styrkupphæðir vegna gervibaðfóta eru hækkaðar úr 50% í 70%. Heimildin hefur ekki verið mikið nýtt og er skýringin talin vera of mikil hlutdeild notanda.
- Breyting á styrkjum til kaupa á tilbúnum bæklunarskóm þannig að sama upphæðin gildi fyrir alla, bæði börn og fullorðna. Þróunin síðastliðin 10 ár hefur verið í þá átt að tilbúnum bæklunarskóm hefur fjölgað en sérsmíðuðum fækkað.
- Lögð er til breyting á stómavörum þannig að val á stómaplötum verði aukið.
- Lagt er til að fjárveitingar vegna sáraumbúða verði fluttar til heimahjúkrunar heilsugæslunnar. Þetta er gert að beiðni heilsugæslunnar.
- Lögð er til breyting á gildandi reglum um öfluga rafknúna útihjólastóla fyrir börn og unglinga undir 18 ára aldri, þannig að þeir einstaklingar sem nú eiga rétt á rafknúnum hjólastól hafi val um það hvort þeir vilja öflugan rafknúin útihjólastól, án tillits til aldurs.
- Veittur hefur verið styrkur til kaup á hvíldarstólum og lyftustólum. Lagt er til að styrkur til kaupa á hvíldarstólum verði felldur niður og í staðinn veittur fastur styrkur til kaupa á lyftustólum fyrir þá sem eiga verulega erfitt með að standa upp úr stólum og eru alla jafna háðir hjólastól.
- Lagt er til að greiðsluþátttaka vegna dyra- og gluggaopnara/lokara hækki úr 90% í 100%.
- Að lokum er lagt er til að auka skilgreiningar í flokknum samtalshjálpartæki og bætt við flokki varðandi forrit fyrir samtal/nærsamskipti. Ennfremur að auka skilgreiningar á viðvörunarbúnaði og bæta við í flokkinn rafstýrðum dagatölum og minnishjálpartækjum.
Reglugerðin gildir frá 5. desember 2008.