Fimmtudaginn 23. mars byrjar 7 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki.

freyjabak

Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva.

Þátttakendur sem verið hafa á námskeiðunum hafa verið mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst á líkama og sál.

Skiptir þá engu hvort þeir "eru gangandi" eða notast við hjólastól.

Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.

Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum frá 23. mars fram til 18. mai, klukkutíma í senn, frá 10:30-11:30.

 

Þátttakendum verður skipt í 2 hópa þar sem hver hópur er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Sjálfboðaliðar á vegum Fræðslunefndar fatlaðra hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk.

Sumir þátttakendur, sem hafa verið nokkur námskeið, eru orðnir það öruggir með sig að þeir sleppa höndum, og ögra þannig enn meira jafnvæginu, en aðrir halda áfram í gjörðina og eru bara sáttir við það :-)

Bergthorahestbak

Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem er ekki síður skemmtilegt. Myndast þá þessi líka fína kaffihúsastemming.

 

Að öllu jöfnu fer þjálfunin fram inni í Reiðhöllinni en ef aðstæður eru góðar og þátttakandi treystir sér til er farið út. Það er þó kalt í Reiðhöllinni og því nauðsynlegt að mæta í hlýjum fatnaði.

Um námskeiðið sjá Berglind Inga Árnadóttir, reiðkennari og eigandi hestanna og Fríða Halldórsdóttir sem þekkir vel til MS-sjúkdómsins.

7 vikna námskeið kostar 23.100 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.300 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum sem ófötluðum einstaklingum.

Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslu.

 

Skráning á msfelag@msfelag.is eða á skrifstofunni í síma 568 8620 fyrir föstudaginn 17. mars.

 

Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.