Fimmtudaginn 9. október kl. 10:30 byrjar nýtt 10 vikna reiðnámskeið, þ.e. þjálfun á hestbaki. Þátttakendur sem tóku þátt í tveimur fyrstu reiðnámskeiðunum sem haldin voru fyrr á árinu eru þegar búnir að skrá sig á þetta námskeið og geta vart beðið eftir að byrja á ný. Þeir eru allir sammála um að námskeiðin hafi styrkt þá á sál og líkama því fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur.

Námskeiðið er einu sinni í viku, á fimmtudögum  frá 9. október fram til 11. desember. Þátttakendum verður skipt í 2 eða 3 „holl“ þar sem hvert holl er í um 30 mínútur með hestinum, þar af um 20 mínútur á baki. Um 10 mínútur fara í að fara á bak og af baki. Nægur mannskapur er til að hjálpa þátttakendum á og af baki. Einn aðstoðarmaður teymir hestinn og einn til tveir til viðbótar ganga með honum, allt eftir getu hvers og eins þátttakanda. Jafnvel óvanasta fólk finnur sig öruggt á baki. Hestarnir eru einstaklega gæfir og vanir að umgangast óvant fólk. Á meðan hluti hópsins er á baki njóta hinir félagsskapar hvors annars – sem ekki er síður skemmtilegt að sögn.

10 vikna námskeið kostar 30.000 kr. fyrir félagsmenn. Námskeiðið er dýrt í krónum talið en þegar litið er til þess hvað námskeiðið er langt þá kostar hver tími 3.000 kr. Innifalið í því er allt að þrír starfsmenn á hvern þátttakanda, hestur á fóðrum, öryggisbelti, reiðtygi og hjálmur til láns og öll aðstaða til að taka á móti fötluðum einstaklingum. Ósjaldan er boðið upp á kaffi fyrir þá sem bíða og í lok beggja fyrri námskeiða var slegið upp heljarinnar veislu þar sem allir kvöddust með virktum og töluðu um hvenær næsta námskeið gæti hafist.

Til að koma á móts við hátt þátttökugjald býður MS-félagið þátttakendum að skipta greiðslum á þrjá mánuði, þ.e. 10.000 kr. á mánuði.

Námskeiðið er haldið í samstafi við Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Reiðhöllin er í Mosfellsbæ við Varmárbakka, sjá staðsetningu hér.

 

Sjá má fyrri umfjallanir um reiðnámskeiðin hér, hér og hér.

Sjá myndir sem teknar voru á fyrri reiðnámskeiðum hér.

 

Skráning í síma 568 8620 á milli kl. 10 og 15 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is. Takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið þannig að betra er að skrá sig fyrr en síðar.

 

 

Bergþóra Bergsdóttir