MS-félag Íslands er með styrktarsjóð sem styrkir ungt fólk með MS-greiningu til náms.

Sækja má um styrk til að greiða skólagjöld, námsbækur, námskeið sem eru hluti af námi og annað sem styrkir einstaklinginn á annan hátt til náms. Umsækjandi skal skila afriti af útlögðum kostnaði vegna námsins.

Hámarksstyrkur er 50.000 kr. á ári. Einstaklingur getur sótt aftur um styrk eftir tvö ár.

Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári.

Umsóknir fyrir haustönn 2017 skulu berast fyrir lok júní.

Rétt til úthlutunar eiga þeir félagar í MS-félagi Íslands sem eru á aldrinum 18-30 ára og eru skuldlausir við félagið.

Umsóknir með upplýsingum um nafn, kennitölu, símanúmeri og reikningsnúmeri, tilgangi náms og afriti af greiðslugögnum má skila inn rafrænt á vefnum hér eða senda á netfangið msfelag@msfelag.is eða með pósti á MS-félag Íslands, Sléttuvegi 5, 103 Reykjavík.

 

Nánari upplýsingar veitir Helga Kolbeinsdóttir í síma 568 8620.

 

 

Mynd af blog.voki.com með creative common leyfi

BB