Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Sækja má um styrk til að greiða skólagjöld, námsbækur, námskeið sem eru hluti af námi og annað sem styrkir einstaklinginn á annan hátt til náms. Umsækjandi skal skila afriti af útlögðum kostnaði vegna námsins.
Hámarksstyrkur er 50.000 kr. á ári. Einstaklingur getur sótt aftur um styrk eftir tvö ár.
Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári.
Umsóknir fyrir haustönn 2019 skulu berast fyrir lok september.
Rétt til úthlutunar eiga þeir félagar í MS-félagi Íslands sem eru á aldrinum 18-30 ára og eru skuldlausir við félagið.
Umsóknir með upplýsingum um nafn, kennitölu, símanúmer og reikningsnúmer, tilgang náms og afrit af greiðslugögnum má senda rafrænt hér á vefnum, senda á netfangið msfelag@msfelag.is eða með pósti á MS-félag Íslands, Sléttuvegi 5, 103 Reykjavík.
BÓ