18.09.2018
Á dögunum fór fram uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Berglind Björgúlfsdóttir og Ólína Ólafsdóttir mættu fyrir hönd félagsins til að taka formlega á móti þeim 1.327.082 kr. sem söfnuðust í maraþoninu.
Vel var tekið á móti þeim stöllum, sem og öðrum sem mættir voru í sama tilgangi.
Enn og aftur, kærar þakkir hlauparar, stuðningsfólk og pepparar :-)
Stuðningur ykkar er félaginu ómetanlegur og hjálpar til við að efla þjónustuna við félagsmenn.