Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu er eigandi að útivistarparadísinni Krika við Elliðavatn. Þar er öll aðstaða sniðin að þörfum fatlaðra og hreyfihamlaða svo þeir fái stundað útiveru og veiði í vatninu.

Allir eru velkomnir.

Opið er daglega frá kl. 13-18 í sumar, nema hvað á föstudögum er opið til kl. 19.

Veitingar eru til sölu á hóflegu verði.

Á sunnudögum er vöfflukaffi.

Þriðjudagar eru grænmetisdagar og er boðið upp á smurt brauð með kaffinu.

Miðvikudagar eru handverksdagar en þá er tilvalið að fá góð ráð um prjón og hekl með kaffisopanum ljúfa.

Fimmtudagar eru snúðugir sætabrauðsdagar fyrir sælkera.

Á föstudögum er grillið dregið fram og pylsur viðraðar, svöngum gestum til mikillar gleði.

Sjálfboðaliðar standa vaktina hverju sinni og hefja frágang hálftíma fyrir lokun svo gæta þarf að því að panta ferðaþjónustu tímanlega svo sjálfboðaliðar geti gengið frá og lokað á réttum tíma nema um annað sé sérstaklega samið.

 

Hér má sjá leiðarlýsingu og hér loftmynd.

 

Síminn í Krika er 666 5652.

 

 

 

Upplýsingar úr auglýsingu frá Krika.