Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, er eigandi að útivistarparadísinni Krika við Elliðavatn. Þar er öll aðstaða sniðin að þörfum fatlaðra og hreyfihamlaða svo þeir fái stundað útiveru og veiði í vatninu.

Opið er daglega frá kl. 12-17 í sumar, nema hvað á föstudögum er opið til kl. 18.

Veitingar eru til sölu á hóflegu verði.

Allir eru velkomnir.

 

Dagskrá:

  • Sunnudagar: Vöfflukaffi. Þá er hægt að kaupa sér nýbakaðar vöfflur með sultu og rjóma.
  • Mánudagar: Kósý í Krika.
  • Þriðjudagar: Grænmeti í poka. Þá er hægt að kaupa sér smurt brauð og fá grænmeti í poka með sér heim. Munið að taka með ykkur fjölnota poka.
  • Miðvikudagar: Handavinnudagar.
  • Fimmtudagar: Prjónadagar. Tilvalið er að fá góð ráð um prjón og hekl með kaffisopanum ljúfa.
  • Föstudagar: Pylsudagar. Grillið dregið fram seinni partinn og pylsur grillaðar.
  • Laugadagar: Afslöppun og huggulegheit.

Dagskráin er ekki heilög því sjálfboðaliðunum sem stýra sumarstarfinu er trúandi til margs.

 

Sjálfboðaliðar hefja frágang hálftíma fyrir lokun svo gæta þarf að því að panta ferðaþjónustu tímanlega svo sjálfboðaliðar geti gengið frá og lokað á réttum tíma nema um annað sé sérstaklega samið.

 

Síminn í Krika er 666 5652.

Fésbókarsíða Krika hér

 

Kriki

 

 

Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi