Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Til sölu eru falleg gjafakort hjá MS-félaginu þar sem gjafaframlag rennur í tækjakaupasjóð félagsins.
Lágmarks framlag er 2.000 kr. en annars er verð kortanna ótakmarkað.
Gjafakortin eru tilvalin fyrir fólk í jólagjöf, sérstaklega fyrir fólk „sem á allt“ og þarf ekki fleiri postulínsstyttur J
Hægt er að fá kortin með mismunandi myndum eftir Eddu Heiðrúnu Backman og Tolla sem prýtt hafa jólakort félagsins undanfarin ár.
Inn í kortið er áritað með fallegu letri að um gjafakort MS-félagsins sé að ræða sem með því hefur móttekið gjafaframlag í tækjakaupasjóð félagsins. Sjóðnum er ætlað að fjármagna tæki til notkunar í sjúkraþjálfunarsal MS-Setursins.
Bent er á mikilvægi endurhæfingar og líkamsþjálfunar vegna afleiðinga MS-sjúkdómsins, sem með tímanum hefur áhrif á leiðni taugaboða þannig að skilaboð um hreyfingu, tal eða hugsun truflast og nær illa eða alls ekki fram til réttra líkamshluta.
Kortin eru til sölu á skrifstofu MS-félagsins að Sléttuvegi 5 á milli kl. 10 og 15 mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. desember.
Hægt er að greiða fyrir gjafakort með greiðslukorti, sé þess óskað.