Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Ýmsar kynjaverur tóku á móti gestum, svo sem Gilitrutt, Bárður tröll og geiturnar þrjár en þar var leikhópurinn Lotta á ferð. Hópurinn sýndi hluta úr leikverkinu Gilitrutt sem leikhópurinn mun sýna í sumar víða um land.
Þá söng söngkonan Unnur Eggertsdóttir nokkur lög við gítarundirleik föður síns. Í kjölfarið sungu tvær litlar hnátur lagið Ég syng, sem Unnur hafði sungið í undankeppni Eurovision á eftirminnilegan hátt.
Veitingar voru ekki af verri endanum og voru þeim gerðar góð skil. Nóg var að gera hjá pysluafgreiðslumanninum í Atlantsolíubílnum og íspinnarnir frá Kjörís þóttu góðir.
Þetta var yndislegur dagur í alla staði og þökkum við öllum fyrir komuna.
Undir Myndasafni hér á vefsíðunni /?pageid=144 er að finna myndir frá skemmtuninni. Myndirnar tóku Kristján Einar Einarsson og Ingdís Líndal.
BB