Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samninga við Hjólið ehf. í Kópavogi og Örninn hjól ehf. í Reykjavík um einfaldar viðgerðir á göngugrindum og handknúnum hjólastólum.
Notendur geta sótt viðgerðarþjónustu til þessara hjólreiðaverkstæða vegna einfaldra viðgerða á göngugrindum og handknúnum hjólastólum en geta jafnframt valið verkstæði hjálpartækjamiðstöðvar SÍ kjósi þeir það frekar.
Dæmi um einfaldari viðgerðir á göngugrindum:
Skipta um hjól, legur, handföng og grip, festa grip á handföng, skipta um barka, laga læsingu og gera við bremsur.
Dæmi um einfaldari viðgerðir á hjólastólum:
Skipta um legur að framan, gúmmí á keyrsluhandfangi, legur í göflum, arma og hjól á veltivörn, gera við sprungið dekk, skipta um dekk og legur aftan, laga fótafjalir, barka í bremsum, barka í bakhalla, herða upp stólinn, laga bremsur og hliðarspjöld, skipta um eða laga veltivörn, laga bakhalla, herða upp gjarðir, skipta um gjarðir og pumpu, gera við bremsur aðstoðarmanns.
Hjólið ehf.
Smiðjuvegi 9, gul gata
Kópavogi
Sími: 561-0304
Örninn hjól ehf.
Faxafen 8
Reykjavík
Sími: 588-9890
Hjálpartækjamiðstöð
Vínlandsleið 16
Reykjavík
Sími: 515-0100
Afgreiðslutími frá 10:00 - 15:00 virka daga
Viðgerðaþjónusta utan höfuðborgarsvæðis
Sjúkratryggingar Íslands eru með samninga um viðgerðir á hjálpartækjum við verkstæðið Rafeyri ehf. á Akureyri og Geisla ehf. í Vestmannaeyjum. Með þessum samningum geta notendur fyrir norðan og í Vestmannaeyjum sótt viðgerðarþjónustu í heimabyggð á hjálpartækjum. Gilda sömu reglur um viðgerðir á þessum verkstæðum og á verkstæði SÍ. Notendur á þessum landsvæðum geta einnig valið verkstæði SÍ kjósi þeir það frekar.
Rafeyri ehf.
Norðurtanga 5
Akureyri
Sími: 461-1221
Geisli ehf.
Flötum 29
Vestmannaeyjum
Sími: 481-3333
Heimild: sjukra.is
BB