Einstaklingum með MS bjóðast margvísleg námskeið sem miða að því að efla styrk og færni, og auka andlega vellíðan. Hægt er að fara á námskeið hjá Styrk, sjúkraþjálfun, vera með í yoga-hópi með Birgi Jónssyni, Ananda yoga, eða fá þjálfun á hestbaki hjá Hestamannafélaginu Herði.

 

STYRKTARÞJÁLFUN

Hjá Styrk, sjúkraþjálfun, miða æfingar að því að efla styrk, færni, jafnvægi og úthald. Þjálfunin fer fram í tveimur hópum sem miða við getu og færni einstaklinganna. Þjálfunin er þó einstaklingsmiðuð. Mjög góð aðstaða er hjá Styrk, bæði til hópþjálfunar og æfinga í tækjasal. Fyrsti tíminn eftir áramót er mánudagurinn 9. janúar. Öllum er frjálst að koma og taka prufutíma eða fylgjast með. Æfingarnar þykja mikil áskorun, einstaklega fjölbreyttar og skemmtilegar. Enginn tími er eins. Sjá nánar hér.

 

YOGA-NÁMSKEIÐ

Um er ræða svokallað Raja Yoga (konunglegt yoga) en það samanstendur af öllu yoga; Hatha, Karma, Bhakti, Ashtanga og Pranayama yoga. Notaðar eru teygjur, styrktaræfingar, öndun, dans og hugleiðsla til að komast nær kjarnanum og fá meiri orku og þrótt. Einnig er fræðsla um yoga, heimspeki, mataræði I og II, siðfræði, trú, meðvirkni (að sleppa tökunum), orkustöðvar ofl. Sjá nánar hér. 

 

ÞJÁLFUN Á HESTBAKI - REIÐNÁMSKEIÐ

Fyrir utan góðan félagsskap við hesta og menn, þá hjálpa hreyfingar hestsins til við að efla jafnvægi og styrkja bak- og lærvöðva sem fljótir eru að rýrna hjá okkur MS-fólki eftir því sem hægir á okkur. Þátttakendur sem verið hafa á námskeiðunum hafa verið mjög ánægðir og finnst sem þeir hafi styrkst, bæði á líkama og sál. Sjá nánar hér.

 

 

BB