Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
MS-félagið hefur látið gera jólaskraut úr fílti með myndum af laufabrauði, jólaketti og jólastjörnu í stíl við jólapakkamerki sem félagið lét hanna og er líka með til sölu.
Jólaskrautinu er pakkað í fallega gjafapakkningu og eru 6 í pakka, tvö af hverju, á 1.500 kr.
Upplagt er að nota skrautið til að skreyta jólapakka með, hengja á greinar eða gefa í tækifærisgjöf - nú eða í jólagjöf !!
Jólaskrautið er til sölu hjá félaginu að Sléttuvegi 5 og þegar félagið er með sölubása í Kringlunni, Fjarðarkaupum og Kjarnanum í Mosfellsbæ og á jólabasar MS-Setursins. Einnig í verslunnni Líf og list í Smáralind og hjá Dagbjörtu á Akureyri, sjá lista yfir sölustaði á forsíðu, hægra megin.
Félagið verður með sölubása:
Kringlan, 20. nóvember kl. 13-19, hjá Body shop
Fjarðarkaup, 21. nóvember kl. 13-18
Basar hjá MS-Setrinu, Sléttuvegi 5, 22. nóvember kl. 13-16
Kjarni Mosfellsbæ, 21. og 28. nóvember kl. 14-18
Kringlan, 27. nóvember kl. 13-19, hjá Body shop
Fjarðarkaup, 28. nóvember kl.13-18
Þá má minna á að félagið er einnig með jólakort Eddu Heiðrúnar frá árunum 2011-2013 til sölu. 10 kort í pakka kosta 1.000 kr. Sjá hér.