MS-félagið blæs til sumarhátíðar á Sléttuvegi 5 þann 31. maí kl. 15 -17. Við ætlum að styrkja tengslin og gera okkur glaðan dag. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Heimildarmynd um listakonuna Lydia Emily 'The Art of Rebellion', listina, fjölskylduna og baráttuna við MS-sjúkdóminn sýnd í Háskólabíói 31. maí í tilefni af alþjóðadegi MS.
Aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 9. maí kl. 17:00 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík bæði sem staðfundur og fjarfundur. Skrá þarf þátttöku á fjarfund fyrirfram.
MS-blaðið er 40 ára í ár. Í dag fögnum við útgáfu 1. tbl. 2023 sem er helgað unga fólkinu. Blaðið hefur verið sent til félaga og styrktaraðila og ætti að berast þessa dagana en er einnig aðgengilegt hér á rafrænu formi.
MS fólk á Suðurlandi boðar til hittings 9. janúar kl. 20 í húsi Rauða krossins á Selfossi að Eyravegi 23.
Fulltrúar frá MS-félagi Íslands munu einnig mæta til að ræða starf félagsins og áherslur á komandi misserum.