09.05.2018
MS-félagið hefur undanfarin ár haft til sölu minningarkort, sem við sendum fyrir þína hönd, þar sem þú styrkir félagið í nafni hins látna/hinnar látnu. Minningarkortin eru mikilvægur styrkur við félagið og um leið falleg leið að minnast hins látna. Minningarkortið hefur nú fengið nýjan og fallegan búning, en það prýðir myndin ,,Byr undir báðum" eftir Eddu Heiðrúnu Backman.